Síldarævintýrið Siglufirði

Upplýsingavefur um Síldarævintýrið 2008

Velkomin(n)

 



Nú í ár, 2010 verður Síldarævintýrið haldið í 20. sinn.


Af því tilefni verður tekin upp sú nýbreytni, að helgina fyrir Verslunarmannahelgi hefjast "Síldardagar" sem standa fram eftir vikunni, eða þar til sjálft Síldarævintýrið hefst, fimmtudaginn 29. júlí 2010.

Undirbúningur er í fullum gangi, og dagskrárliðir að verða fullmótaðir.

Við ætlum að fá fjölda fólks til Siglufjarðar á Síldardaga og Síldarævintýri.

Eitt af því sem bætist við, er skammtíma útvarp, FM.Trölli, sem verður í Siglufirði á Síldardögum og Síldarævintýri. 
Ný vefsíða tilheyrandi FM.Trölla er http://fm.trolli.is og má þar sjá hvernig dagskráin er að myndast hjá okkur.




Þegar Siglufjörður var síldahöfuðstaður heimsins unnu þúsundir verkamanna og kvenna við síldina og nokkurs konar gullgrafarastemming var ríkjandi
Íbúafjöldinn var eins og í stórborg, allstaðar líf og fjör. Þessa stemmingu er ætlunin að reyna að endurskapa með virkri þátttöku heimamanna og gesta.

Á Siglufirði eru frábær tjaldstæði í hjarta bæjarins og við Stóra-Bola, gistingu er einnig hægt að fá innan dyra á gistiheimilinu Hvanneyri. Sundlaugin verður opin frá morgni til kvölds og verslanir hafa rúman opnunartíma.  Góður golfvöllur er til staðar og skemmtilegar gönguleiðir við allra hæfi í næsta nágrenni og hægt verður að aka yfir hið stórfenglega Siglufjarðarskarð.

Löggæsla á hátíðinni verður ströng og munu lögregla og björgunarsveitir vera til taks allan sólarhringinn en einnig er mjög góð heilsugæsla í bænum sem verður í viðbragðsstöðu alla helgina.



coke

Mynd augnabliksins

margot_027.jpg
spar1
merk
rarik
spar
Olis
rett ver joa
egills
soluturninn
skiltagerdin
mogo
torg
allinn

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning